Fotbolti.net
05.05.26 - 13:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Magnús Ingi á leið í Þrótt

Magnús Ingi á leið í Þrótt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Magnús Ingi Þórðarson (1999) er á leið í Þrótt R. á láni frá Fram út tímabilið.

Magnús hefur ekki verið í leikmannahópi Fram í síðustu leikjum og var fjallað um það fyrir rúmri viku síðan að hann vildi fara frá félaginu.

Fótbolti.net fjallað um áhuga Keflavíkur á leikmanninum en ekkert varð úr því að hann færi þangað.

Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni lokaði síðasta miðvikudag en enn er möguleiki fyrir leikmenn að fara í félög í neðri deildum út daginn á morgun.
Þróttur er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Lengjudeildinni. Liðið hefur verið án framherja síns, Adams Árna Róbertssonar, í fyrstu leikjunum. Nú er sóknarlínan að styrkjast með komu Magnúsar.

Samkvæmt Transfermarkt hefur hann spilað 84 leiki í efstu deild, skorað í þeim tíu mörk og lagt upp sjö. Magnús gæti spilað sinn fyrsta leik með Þrótti á Húsavík á laugardag þegar Þróttarar mæta Völsungum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.