Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   þri 05. maí 2026 15:44
Elvar Geir Magnússon
Mbappe segir fréttir af ósætti við þjálfarateymið blásnar upp
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, sóknarmaður Real Madrid, er í kapphlaupi við tímann til að vera klár í El Clasico slaginn gegn Barcelona sem fram fer á sunnudag.

Mbappe hefur verið til umfjöllunar í spænskum fjölmiðlum þar sem sagt er að hann hafi átt í deilum við menn í þjálfarateyminu, aðstoðarmenn Alvaro Arbeloa. Sagt er að hann hafi lent í háværu rifrildi á æfingasvæðinu.

Þá hefur Mbappe fengið gagnrýni fyrir að fara í frí með kærustu sinni í meiðslunum en þau tvö voru mynduð njóta lífsins á snekkju á meðan liðsfélagar hans voru að búa sig undir leikinn gegn Börsungum.

Það stefnir í að Real Madrid fari titlalaust í gegnum tímabilið en liðinu hefur mistekist að vinna stóran titil síðan Mbappe kom til félagsins. Margir stuðningsmenn liðsins eru ósáttir við hugarfar hans og hátt í 300 þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem kallað er eftir því að hann yfirgefi félagið.

Í tilkynningu úr herbúðum Mbappe segir að ásakanir um að hann sé ekki að sinna endurhæfingu sinni séu rangar og fréttir um ósætti við aðila innan þjálfarateymisins blásnar upp.

Það vekur þó athygli að í yfirlýsingunni ekki er neitað fyrir að ósætti milli hans og aðila innan teymisins.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 36 30 1 5 91 32 +59 91
2 Real Madrid 36 25 5 6 72 33 +39 80
3 Villarreal 36 21 6 9 67 43 +24 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 36 14 6 16 31 37 -6 48
8 Real Sociedad 36 11 12 13 55 56 -1 45
9 Vallecano 36 10 14 12 37 43 -6 44
10 Athletic 36 13 5 18 40 53 -13 44
11 Valencia 36 11 10 15 39 51 -12 43
12 Sevilla 36 12 7 17 46 58 -12 43
13 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
14 Espanyol 36 11 9 16 40 53 -13 42
15 Alaves 36 10 10 16 42 54 -12 40
16 Girona 36 9 13 14 38 53 -15 40
17 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
18 Mallorca 36 10 9 17 44 55 -11 39
19 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
20 Oviedo 36 6 11 19 26 56 -30 29
Slapp
banner
banner