Arsenal 1 - 0 Atletico Madrid (2-1 samanlagt)
1-0 Bukayo Saka ('44)
1-0 Bukayo Saka ('44)
Arsenal tók á móti Atlético Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og úr varð hörkuslagur á milli tveggja sterkra liða.
Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en áttu í erfiðleikum með að skapa góð færi á meðan gestirnir frá Madríd áttu í vandræðum með að taka boltann yfir miðjulínuna.
Staðan hélst markalaus í nokkuð tíðindalitlum leik þar til Bukayo Saka tók forystuna þegar hann fylgdi eftir marktilraun frá Leandro Trossard skömmu fyrir leikhlé. Saka var með tvo varnarmenn í sér en var fyrstur að átta sig og gerði mjög vel að vera réttur maður á réttum stað til að skora af stuttu færi.
Leikurinn jafnaðist út í síðari hálfleik og skiptust liðin á að eiga góð marktækifæri þar til Arsenal náði meiri stjórn. Giuliano Simeone fékk besta færið en hann skaut framhjá undir þungri pressu frá Gabriel. Leikmenn Atlético heimtuðu vítaspyrnu en fengu hornspyrnu í staðinn frá Daniel Siebert dómara.
Atlético tókst ekki að skapa mikla hættu á lokakaflanum og virtust heimamenn í liði Arsenal sigla sigrinum heim nokkuð þægilega. Viktor Gyökeres fékk frábært tækifæri til að innsigla sigur en skaut yfir úr dauðafæri.
Lokatölur 1-0 fyrir Arsenal sem þýðir að lærlingar Mikel Arteta fara í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í 20 ár sem Arsenal kemst í úrslitaleik keppninnar.
05.05.2026 20:26
Sjáðu ótrúlegt klúður Simeone - Átti að dæma víti?





