Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Mætir með sína þægilegu nærveru
Fer Arsenal í úrslitaleikinn?
Fer Arsenal í úrslitaleikinn?
Mynd: EPA
Gylfi og Óskar Smári.
Gylfi og Óskar Smári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld ræðst hvort Arsenal eða Atletico Madrid fari í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Staðan er jöfn í einvíginu, 1-1, eftir fyrri leikinn í Madríd.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Arsenal 2 - 1 Atletico Madrid
Einhverjir leikmenn Arsenal hafa átt erfitt með svefn í nótt, svo mikið er víst. Spái því að Arsenal mæti í leikinn í spennufalli og Atletico slá þá út af laginu með marki snemma. Arsenal eru bara svo miklir töffarar þetta tímabilið að þeir finna leið út úr snörunni eftir frábæra hornspyrnu Bukayo Saka sem er kominn aftur í gang. Viktor Einar klárar þetta í lokin.

Óskar Smári Haraldsson
Arsenal 2 - 0 Atletico Madrid
Arsenal klárar þetta á faglegan hátt. Rice með bombu í kvöld.

Fótbolti.net - Kári Snorrason
Arsenal 2 - 2 Atletico Madrid
Hundurinn Win er kominn í snemmbúið sumarfrí og því enginn Arsenal sigur í kvöld. Simeone mætir með sína þægilegu nærveru á Emirates og býður áhorfendum upp á veislu. Lookman fer á kostum og skorar tvö mörk í kvöld, sá sænski skorar að minnsta kosti eitt fyrir Nallara. Leikurinn mun ráðast í vítaspyrnukeppni þar sem David Raya mun ekki vera nálægt því að verja víti.

Staðan í heildarkeppninni:
Gylfi Tryggva - 29
Óskar Smári - 27
Fótbolti.net - 21
Slapp
banner
banner