Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   þri 05. maí 2026 14:38
Elvar Geir Magnússon
Trúir á „kraftaverk“ varðandi Gibbs-White
Gibbs-White fékk ljótan skurð.
Gibbs-White fékk ljótan skurð.
Mynd: Instagram/morgangibbswhite
Óvíst er hvort Morgan Gibbs-White, lykilmaður Nottingham Forest, geti verið með í seinni leiknum gegn Aston Villa í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Gibbs-White lenti í samstuði við Robert Sanchez, markvörð Chelsea, og báðir fengu vafning um höfuðið.

Forest vann 3-1 sigur gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær og er ósigrað í tíu leikjum í öllum keppnum.

„Hann fékk ljótan skurð en hann er bardagamaður og við trúum á kraftaverk. Ég trúi því algjörlega að hann geti verið með í næsta leik," sagði Vítor Pereira, stjóri Forest, eftir leikinn í gær.

Gibbs-White birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í gærkvöldi þar sem hann þakkaði fyrir skilaboð sem hann hafði fengið og birti mynd af sér þar sem búið var að sauma saman skurðinn í andliti hans.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 21 9 5 69 32 +37 72
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 10 12 52 46 +6 52
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner