Fotbolti.net
05.05.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Verður frá í fimm mánuði

Verður frá í fimm mánuði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Franski vinstri bakvörðurinn Ferland Mendy er enn og aftur kominn á meiðslalistann hjá Real Madrid, en áætlað er að hann verði frá í fimm mánuði.
Þessi þrítugi bakvörður hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu ár og þá sérstaklega vöðvameiðsli.

Hann er á lista yfir leikmenn sem Real Madrid ætlar að losa sig við í sumar.

Mendy hefur spilað marga leiki síðan hann kom frá Lyon árið 2019, en meiðslin hafa verið þrálát á síðustu árum og getur það ekki lengur treyst á þjónustu hans.

Um helgina meiddist hann eftir fjórtán mínútur í 2-0 sigrinum á Espanyol sem munu halda honum frá velli í fimm mánuði.

Samkvæmt Fabrizio Romano mun hann fara í aðgerð á næstu dögum í von um að ljúka meiðslavandræðunum fyrir fullt og allt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.