Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
banner
   fös 05. júní 2020 22:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Simmi er frábær markvörður og verið það síðan ég kenndi honum þetta allt hjá ÍH"
Mynd: Hulda Margrét
„Þetta var fínt, margt sem má bæta en vorum í erfiðleikum með þá. Það eru fullt af góðum fótboltamönnum í þeirra liði," sagði Mikael Nikulásson, þjálfari Njarðvíkur, eftir 0-4 sigur sinna manna gegn Smára í Mjólkurbikarnum.

Njarðvík komst yfir snemma leiks en tókst ekki að bæta í forskotið fyrr en seint í leiknum. Á síðustu sextán mínútunum skoraði Njarðvík þrjú mörk og gerði út um leikinn.

Viðtalið í heild sinni má sjá og hlusta á í spilaranum hér að ofan.

„Þeir gátu alveg jafnað og fengu eitt og eitt færi. Þeir voru með besta manninn á vellinum. Simmi er frábær markvörður og hefur verið það síðan ég kenndi honum þetta allt hjá ÍH. Við hefðum getað skorað tíu mörk en hann kom í veg fyrir það. Þeir hefðu alveg getað skorað líka, horfðu bara á liðið þeirra, góðir í fótbolta en eru bara ekki í standi."

„Þú horfir á leikskýrsluna og þetta eru allt algjörir meistarar, fyrrverandi Íslandsmeistarar. Ég var ekkert í rónni fyrir þennan leik en á endanum var þetta auðvelt."

Slapp
banner