26.11.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sá næstmarkahæsti falur fyrir 35 milljónir

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski framherjinn Gustavo Varela er eftirsóttur af félögum á Ítalíu, Englandi og víðar og gæti fallbaráttulið Monza verið tilbúið að selja hann fyrir um 35 milljónir evra.

TENGT EFNI
Markahæsti maður deildarinnar gæti skipt um félag
Varela er 21 árs gamall og hefur skorað 11 mörk í 11 leikjum með Monza í efstu deild á Ítalíu, auk þess að hafa sett 9 mörk í 27 leikjum á ferli sínum með yngri landsliðum Portúgal.
Fabrizio Romano greinir frá því að Monza gæti verið reiðubúið að hlusta á tilboð sem hefjast í 30 milljónum evra.
Það er þó mögulegt að ákveðið uppboðsástand geti skapast ef mörg félög leggja fram tilboð í framherjann markheppna.
Varela er ekki með riftunarákvæði í samningi sínum við Monza og fær Benfica 20% af ágóða sölunnar. Monza borgaði rúmar 3 milljónir evra til að kaupa Varela síðasta sumar.
Þrátt fyrir mikla markaskorun er Varela aðeins næstmarkahæstur í ítölsku deildinni. Donyell Malen er kominn með 12 mörk eftir að hafa sett fernu í stórsigri Roma um síðustu helgi.