Fotbolti.net
27.11.26 - 06:01
Ívan Guðjón Baldursson

Frank: Vonandi verður þetta vendipunkturinn

Frank: Vonandi verður þetta vendipunkturinn
Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank, danskur stjóri Crystal Palace sem var ráðinn inn í síðasta landsleikjahléi, var kátur eftir fyrsta sigur sinn við stjórnvölinn.
McNeil: Frank kemur með orku og sjálfstraust
TENGT EFNI

McNeil: Frank kemur með orku og sjálfstraust

Palace lagði Real Sociedad að velli í gærkvöldi eftir að hafa tapað fyrsta leiknum undir stjórn Frank gegn úrvalsdeildarnýliðunum í Coventry City.

„Vonandi verður þetta vendipunktur tímabilsins, einn sigur getur gert svo mikið fyrir andlega líðan leikmanna. Einn sigur getur byggt upp sjálfstraust og það er mikilvægt að við reynum að byggja á þessum úrslitum. Ég sá meira jákvætt heldur en neikvætt í okkar frammistöðu í kvöld en það er augljóslega margt sem við þurfum enn að bæta," sagði Frank eftir lokaflautið.

Palace lenti undir gegn Sociedad en tókst að jafna eftir að gestirnir frá Spáni fengu dæmda vítaspyrnu á sig og fékk leikmaður þeirra seinna gula spjaldið. Dwight McNeil gerði svo sigurmarkið á 81. mínútu áður en Yéremy Pino klúðraði vítaspyrnu í uppbótartíma.

„Það er stórkostleg tilfinning að ná í þennan sigur á erfiðum tímapunkti tímabilsins þar sem menn eru ekki með sjálfstraustið í hæstu hæðum. Það segir mikið um hugarfar liðsins að geta unnið leik eftir að hafa lent undir og ég er virkilega ánægður með það.

„Við vorum að spila gegn mjög sterkum andstæðingum sem sitja í fimmta sæti í La Liga. Þeir eru frábærir á boltanum og við vörðumst vel í fyrri hálfleik áður en við sköpuðum færin sem við þurftum til að sigra í síðari hálfleiknum."
Frank: Vonandi verður þetta vendipunkturinn
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin

#LiðLmunStig
1Bournemouth5+1015
2Juventus5+1013
3Ferencvaros5+813
4Leverkusen5+912
5Benfica5+612
6St. Gilloise5+811
7Besiktas5+410
8Olympiakos5+110
9NEC5+110
10AZ5+59
11Anderlecht5+59
12Crystal Palace5+48
13Sunderland508
14Lyon5-18
15Hoffenheim5+27
16Levski507
17Dinamo Zagreb5-17
18Salzburg5-37
19Plzen506
20OFI5-16
21Rennes5-16
22Milan5-16
23Torreense5-36
24Marseille5-36
25Omonia5-46
26Celtic5-46
27Real Sociedad5+45
28Celje5-45
29Sparta Prag5-24
30Jagiellonia5-34
31Sturm5-54
32Celta5-33
33Lillestrom5-82
34Lech5-102
35Hapoel Beer Sheva5-81
36Ararat-Armenia5-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.