Fotbolti.net
26.11.26 - 20:04
Ívan Guðjón Baldursson

Sambandsdeildin: Daníel skoraði - Auðvelt fyrir Brighton

Sambandsdeildin: Daníel skoraði - Auðvelt fyrir Brighton
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó Grétarsson var í byrjunarliði AGF og skoraði í stórsigri liðsins gegn Brann í Sambandsdeildinni í dag.
Aarhus heimsótti Brann til Bergen og skoraði Daníel Leó annað markið í þægilegum 1-4 sigri. Þetta er nauðsynlegur sigur fyrir AGF sem er núna með fimm stig eftir fjórar umferðir, tveimur stigum minna heldur en Brann.

Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu er Midtjylland sótti sinn fyrsta sigur á deildartímabilinu í botnslag gegn Pafos í Kýpur. Midtjylland vann 0-2 og varði Elías Rafn skotin þrjú sem rötuðu á rammann. Danska stórveldið er með fjögur stig eftir sigurinn dýrmæta.

Tómas Bent Magnússon var þá fjarverandi vegna meiðsla er Hearts tapaði á heimavelli gegn toppliði AS Mónakó sem er með fullt hús stiga. Folarin Balogun skoraði dramatískt sigurmark og situr Hearts eftir með eitt stig eftir fjórar umferðir.

Brighton skoraði þá fjögur mörk í auðveldum sigri gegn rúmenska félaginu Universitatea Craiova. Fabian Hürzeler hvíldi ýmsa lykilmenn og er Brighton í öðru sæti deildarinnar, með tíu stig eftir fjóra leiki.

Í öðrum leikjum dagsins fór Ajax létt með Thun á meðan Kairat Almaty hafði betur gegn Færeyingaliði Mjällby.

Kairat 1 - 0 Mjallby
1-0 Erkin Tapalov ('14 )

Ajax 4 - 0 Thun
1-0 Rayane Bounida ('6 )
2-0 Marcos Leonardo ('41 )
3-0 Rayane Bounida ('70 )
4-0 Steven Berghuis ('89 )

Brighton 4 - 0 Universitatea Craiova
1-0 Ibrahim Osman ('3 )
2-0 Maxim De Cuyper ('33 )
3-0 Charalampos Kostoulas ('61 )
4-0 Ibrahim Osman ('63 )
Rautt spjald: Vladimir Screciu, Universitatea Craiova ('39)

Iberia 1999 1 - 0 Getafe
1-0 Giorgi Kobuladze ('25 )
Rautt spjald: Orel Mangala, Getafe ('59)

Jablonec 2 - 0 Lugano
1-0 Martin Cedidla ('70 )
2-0 Lamin Jawo ('85 )

Kauno Zalgiris 2 - 0 Riga
1-0 Anthony Kalik ('56 )
2-0 Gabriel Debeljuh ('61 , víti)
Rautt spjald: ,Iago Siqueira, Riga ('40)Kenan Piric, Riga ('45)

Hearts 2 - 3 Monaco
1-0 Jordi Altena ('15 )
1-1 Folarin Balogun ('25 , víti)
1-2 Edan Diop ('41 )
2-2 Sabah Kerjota ('44 )
2-3 Folarin Balogun ('90 )

Egnatia R 2 - 1 Lincoln
1-0 Alessandro Albanese ('47 )
1-1 Yussef Flalhi Idrissi ('79 )
2-1 Fernando Medeiros ('81 )

Pafos FC 0 - 2 Midtjylland
0-1 Mileta Rajovic ('44 )
0-2 Mikel Gogorza ('82 )

SK Brann 1 - 4 AGF Aarhus
0-1 Tobias Bech ('25 )
0-2 Daniel Leo Gretarsson ('39 )
1-2 Niklas Castro ('51 , víti)
1-3 Stefen Tchamche ('56 )
1-4 Magnus Knudsen ('60 )
Sambandsdeildin: Daníel skoraði - Auðvelt fyrir Brighton
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.