Fotbolti.net
27.11.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Hürzeler: Svo góður gegn liðum sem verjast í lágblokk

Hürzeler: Svo góður gegn liðum sem verjast í lágblokk
Canon

Mynd: EPA

Fabian Hürzeler þjálfari Brighton var kátur eftir öruggan sigur á heimavelli gegn rúmensku andstæðingunum í liði Universitatea Craiova í Sambandsdeildinni í gær.
Sambandsdeildin: Daníel skoraði - Auðvelt fyrir Brighton
TENGT EFNI

Sambandsdeildin: Daníel skoraði - Auðvelt fyrir Brighton

Hurzeler hrósaði Ibrahim Osman í hástert að leikslokum enda skoraði hann tvö mörk og lagði eitt upp er lokatölur urðu 4-0.

„Hann var virkilega góður í dag. Við vitum að hann er sterkastur þegar kemur að því að taka varnarmenn á einn á móti einum, sérstaklega gegn liðum sem eru að verjast í lágblokk," sagði Hürzeler að leikslokum.

„Það er mjög gott að vera með svona leikmann í hópnum, við þurftum á honum að halda til þess að opna vörn andstæðinganna í dag og við munum þurfa á honum að halda í framtíðinni."

Osman er 21 árs gamall og lék á láni hjá Auxerre og Birmingham á síðustu leiktíð.

„Hann sýndi svo miklar framfarir á lánssamningunum og svo aftur á undirbúningstímabilinu í sumar að við ákváðum að vera ekki að lána hann aftur út. Hann leggur sig svo mikið fram og það er frábært að hafa hann í hópnum, hann er fyrirmyndar atvinnumaður og það var hans hegðun í sumar sem varð til þess að við ákváðum að lána hann ekki aftur út.

„Við þurfum að hafa breiðan hóp út af Sambandsdeildinni og erum mjög ánægðir með þessa ákvörðun að hafa haldið Ibrahim hjá félaginu."


Osman hefur aðeins komið við sögu í fjórum úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Hürzeler: Svo góður gegn liðum sem verjast í lágblokk
Canon

Mynd: EPA

Sambandsdeildin

#LiðLmunStig
1Mónakó4+712
2Brighton4+910
3Sint-Truiden4+510
4Ajax4+109
5Panathinaikos4+59
6Lugano4+59
7Twente4+59
8Trabzonspor4+49
9Freiburg409
10Braga4+37
11Mjallby4+37
12FCK4+27
13SK Brann4+17
14Atalanta4+17
15Universitatea Craiova407
16Hajduk Split4-16
17AGF Aarhus4+25
18Jablonec4+15
19Rauða stjarnan405
20FC Nordsjaelland4-15
21Egnatia R4-15
22Gent4-15
23Kairat4-35
24Iberia 19994-24
25Midtjylland4-44
26Borac BL4-23
27Riga4-23
28Inter Escaldes4-33
29Lincoln4-43
30Thun4-43
31Kauno Zalgiris4-83
32CSKA Sofia4-31
33Hearts4-51
34Getafe4-51
35Pafos FC4-61
36KuPS4-81
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.