Fréttamannafundi íslenska landsliðsins á Hampden Park er nýlokið en skoskir fjölmiðlamenn voru duglegir að koma með spurningar á Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara og úr varð skemmtilegur fundur.
Arnar hrósaði skoska landsliðinu í hástert og sagði að það ætti að gera sterkt tilkall til að komast á HM á næsta ári. Hann sagðist aðdáandi miðjumannsins Billy Gilmour sem spilar fyrir Napoli og talaði einnig vel um liðsfélaga hans, Scott McTominay.
Arnar kom inn á það að hann væri stuðningsmaður Manchester United þegar hann ræddi um McTominay og einn skoskur blaðamaður greip boltann á lofti og spurði Arnar hvort það hefðu verið mistök hjá Manchester United að selja McTominay.
Arnar sagði léttur að hann vildi ekki skapa eitthvað umdeilt með svörum sínum og svaraði spurningunni á pólitískan hátt.

Þá var Arnar spurður út í stutta dvöl sína hjá skoska liðinu Dundee United árið 2002. Það gekk ekki vel hjá honum hjá félaginu og hann lék aðeins sex leiki áður en samningi sínum var rift.
Arnar sagðist minningarnar um þann tíma litast af því að hann hafi ekki náð sér á strik í boltanum en sagðist þó hafa notið þess að spila golf meðan hann var á Skotlandi. Hann fór síðan fögrum orðum um landið og Glasgow sem borg.
Landsleikur Skotlands og Íslands hefst klukkan 18:45 á Hampden Park annað kvöld.
Athugasemdir