30.08.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andri Fannar og félagar náðu í sterkt stig

Mynd: Kasimpasa

Mynd: Kasimpasa
Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem náði í sterkt stig gegn Basaksehir í tyrknesku deildinni í kvöld.
Basaksehir var með forystu í hálfleik en Kasimpasa náði að jafna metin þegar skammt var til loka leiksins. Basaksehir hafnaði í 5. sæti á síðustu leiktíð en Kasimpasa hafnaði í 13. sæti, þremur stigum frá fallsæti.

Kasimpasa byrjar tímabilið í ár hins vegar betur og situr í 6. sæti með fimm stig eftir þrjár umferðir. Basaksehir er í 7. sæti með fjögur stig.
Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem tapaði 2-0 gegn Fenerbahce. Samsunspor er í 9. sæti með fjögur stig.
Bjarki Steinn Bjarkason spilaði 86 mínútur í grátlegu 1-1 jafntefli Sudtirol gegn Benevento í ítölsku B-deildinni. Benevento jafnaði metin úr vítaspyrnu í uppbótatíma. Sudtirol er með fjögur stig eftir tvær umferðir.
Kristófer Jónsson spilaði allan leikinn í 2-1 sigri Reggiana gegn Gubbio í ítölsku C-deildinni. Reggiana er með fjögur stig eftir tvær umferðir í B-riðli.
Kristian Nökkvi Hlynsson var fjarverandi þegar Twente vann 4-1 sigur á Cambuur í hollensku deildinni. Twente er í 8. sætimeð sex stig eftir þrjár umferðir.