PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mielec
Sjáðu markið: Fyrsta landsliðsmarkið kom í hús
Eimskip
Thelma Karen Pálmadóttir.
Thelma Karen Pálmadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hin 18 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir er búin að skora sitt fyrsta mark fyrir íslenska landsliðið.

Hún kom Íslandi yfir gegn Úkraínu í mikilvægum leik sem er núna í gangi í undankeppni HM.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  1 Ísland

Markið skoraði hún um miðbik fyrri hálfleiks. Það kom langur bolti fram völlinn sem Sandra María Jessen skallaði í hlaupaleið Thelmu sem kláraði færið snyrtilega.

Fyrsta landsliðsmark Thelmu Karen í fjórða landsleiknum en að öllum líkindum ekki það síðast.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af markinu frá RÚV.


Slapp
banner
banner