Í BEINNI
Landslið kvenna - Undankeppni HM
Úkraína
46'
0
1
1
Ísland

Úkraína
0
1
Ísland

0-1
Thelma Karen Pálmadóttir
'25
05.06.2026 - 16:00
Stadion Miejski
Landslið kvenna - Undankeppni HM
Aðstæður: Gráskýjað og 20 stiga hiti
Dómari: Hristiyana Guteva (BUL)
Stadion Miejski
Landslið kvenna - Undankeppni HM
Aðstæður: Gráskýjað og 20 stiga hiti
Dómari: Hristiyana Guteva (BUL)
Byrjunarlið:
12. Daria Keliushyk (m)
3. Anna Petryk
8. Maryna Shaynyuk
9. Tanya Boychuk
11. Yelyzaveta Molodiuk
13. Lidiia Zaborovets
14. Lyubov Shmatko
15. Nadiia Kunina
19. Roksolana Kravchuk
20. Inna Hlushchenko
21. Lesia Olkhova
Varamenn:
1. Kateryna Boklach (m)
23. Kateryna Samson (m)
2. Iryna Podolska
4. Yana Kotyk
5. Alina Savka
6. Daiana Semkiv
7. Viktoriya Holovach
10. Viktoriia Radionova
16. Svitlana Kohut
17. Yuliia Khrystiuk
18. Iryna Kotiash
22. Olha Basanska
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Lidiia Zaborovets ('27)
Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
Staðan 0-1 fyrir Ísland í hálfleik. ALlt í lagi fyrri hálfleikur og við erum yfir, tökum því. Við megum ekki sofna á verðum því þetta úkraínska lið er hættulegt.

45. mín
Úkraína að hóta!
Fá hérna fínasta færi undir lok fyrri hálfleiks en skotið fer fram hjá markinu. Þetta leit ágætlega út en fer sem betur fer ekki á markið.
44. mín
Emilía komin í góða skotstöðu en þá flautar dómarinn brot á Sædísi sem er allt annað en sátt.
42. mín
Ísland í ágætri stöðu hinum megin á vellinum en Emilía Kiær nær ekki að hemja boltann nægilega vel.
41. mín
Dauðafæri!
Sending á bak við íslensku vörnina og Tanya Boychuk, fyrrum sóknarmaður Þróttar, er í dauðafæri en skot hennar fer fram hjá markinu.
37. mín
Glódís með geggjaðan bolta upp völlinn á Thelmu Karen sem eltir og setur hann svo á markið, en markvörður Úkraínu með þetta í teskeið. Þarna átti kantmaðurinn ungi að reyna að finna Söndru Maríu í teignum.
35. mín
Karólína setur boltann inn á teiginn og finnur Ingibjörgu en skalli hennar er ekki alveg nægilega góður.
34. mín
Thelma aftur!
Karólína Lea með geggjaða sendingu inn á Thelmu Karen sem er komin í mjög gott færi að bæta við öðru marki en markvörður Úkrainu sér við henni í þetta skiptið.
31. mín
Fyrirliðinn er alls staðar!
Úkraína með fyrirgjöf frá hægri. Glódís er gjörsamlega alls staðar og hún kemur þessum bolta frá.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
27. mín
Þvílíkur nagli!
Hildur öskrar hástöfum en er staðin upp nokkrum sekúndum síðar. Þetta var ekki þægilegt en Hildur harkar þetta af sér. Mikill nagli.
27. mín
Gult spjald: Lidiia Zaborovets (Úkraína)
Gult spjald: Lidiia Zaborovets (Úkraína)
Hrikaleg tækling. Glódís alls ekki sátt!
25. mín
MARK!
MARK!Thelma Karen Pálmadóttir (Ísland)
Stoðsending: Sandra María Jessen
Stoðsending: Sandra María Jessen
FYRSTA LANDSLIÐSMARKIÐ!
Þetta var ekki flókið!
Langur bolti fram, Sandra María vinnur skallann og Thelma Karen jarðar varnarmenn Úkraínu með hraðanum!
Hún klárar þetta af mikilli fagmennsku.
Langur bolti fram, Sandra María vinnur skallann og Thelma Karen jarðar varnarmenn Úkraínu með hraðanum!
Hún klárar þetta af mikilli fagmennsku.

22. mín
Emilía með sendingu í gegn á Söndru Maríu en Olkhova var aðeins á undan henni í boltann. Munaði ekki miklu.
19. mín
Sædís með sendingu fyrir markið en hún fer yfir allan pakkann og í markspyrnu sem Úkraína á.
16. mín
Stórsókn Íslands!
Karólína með aukaspyrnu inn á teiginn sem skapar stórhættu. Glódís skallar hann inn á teiginn og Emilía á skot sem fer í varnarmann. Svo eigum við tvö eða þrjú skot í viðbót en einhvern veginn fer boltinn ekki inn.
Ingibjörg átti síðasta skotið sem fór fram hjá markinu. Það var eiginlega besta færið.
Ingibjörg átti síðasta skotið sem fór fram hjá markinu. Það var eiginlega besta færið.
14. mín
Hendi á leikmann Úkraínu og Ísland fær aukaspyrnu á ágætis stað. Karólína mun taka spyrnuna og setja boltann inn í teiginn.
13. mín
Allt í einu er svolítið mikill vindur á vellinum, er að hafa smá áhrif á leikinn.
10. mín
Hörkuskot
Úkraínukonur fá aukaspyrnu af 30 metra færi og ákveða bara að láta vaða. Hörkuskot en Cecilía er vel á verði og nær að verja.
9. mín
Gult spjald: Glódís Perla Viggósdóttir (Ísland)
Gult spjald: Glódís Perla Viggósdóttir (Ísland)
Ekki gott að fyrirliðinn fari í svörtu bókina svona snemma.
6. mín
Úkraína fær ágætis skallafæri úr hornspyrnunni en skallinn var skrítinn, nær ekki að setja hann á markið.
5. mín
Hættuleg sókn upp hægra megin hjá Úkraínu. Glódís setur hann aftur fyrir endamörk og heimakonur fá hornspyrnu.
1. mín
Sandra María byrjar fremst hjá Íslandi, Emilía Kiær er úti vinstra megin og Thelma Karen byrjar hægra megin. Verður líklega eitthvað flæði í þessu
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir að baki. Miklar tilfinningar í úkraínska þjóðsöngnum, skiljanlega. Maður heyrir það alveg að það eru nokkrir Íslendingar hérna, þeir munu vonandi láta vel í sér heyra á meðan leik stendur.
Fyrir leik
Það styttist heldur betur í leik. Bæði lið hafa lokið undirbúningi sínum og fara fljótlega að ganga út á völl.
Fyrir leik
Flottar aðstæður
Aðstæður eru flottar hér á Stadion Miejski í Mielec, sem er í 150 kílómetra fjarlægð frá landamærunum við Úkraínu. Þetta er heimavöllur Stal Mielec sem leikur í næst efstu deild Póllands og var í botnbaráttu þar á tímabilinu sem var að líða.
Hér verða um 300 manns á eftir og um 10 Íslendingar. Það eru þrír fjölmiðlamenn frá Íslandi á leiknum, einn frá RÚV og tveir frá Fótbolta.net.
Það er verið að spila úkraínska þjóðlagatónlist á fullu fyrir leik og mikil stemning.
Veðrið er gott í Póllandi, gráskýjað en um 20 stiga hiti samt sem áður.

Tvær með Íslandstengingu byrja hjá Úkraínu
Það er athyglisvert að í byrjunarliði Úkraínu eru tveir leikmenn sem eru með Íslandstengingu.
Það er í fyrsta lagi leikmaður númer 3 hjá Úkraínu, Anna Petryk. Hún kom til Breiðabliks árið 2022 eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þessi 28 ára gamli miðjumaður lék í eitt sumar á Íslandi en sneri síðan aftur heim í úkraínsku deildina.
Svo er leikmaður númer 9 hjá Úkraínu, Tanya Boychuk, einnig með tengingu við Ísland því hún lék með Þrótti Reykjavík sumarið 2023. Boychuk er fædd og uppalin í Kanada en á ættir að rekja til Úkraínu og spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir þjóðina fyrr á þessu ári.

Emiliía og Thelma Karen byrja
Sveindís Jane Jónsdóttir er auðvitað ekki með vegna meiðsla en sóknarlínuna í hennar fjarveru skipa Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Sandra María Jessen og Thelma Karen Pálmadóttir. Annars er liðið frekar hefðbundið.

Fyrir leik
Hafrún Rakel ekki með
Hafrún Rakel Halldórsdóttir þurfti að draga sig úr landsliðshópnum í vikunni vegna meiðsla. Jelena Tinna Kujundzic úr Þrótti var kölluð inn í hennar stað en verður ekki heldur með í þessum leik. Ísland verður því með 22 leikmenn í hópnum, ekki 23 að þessu sinni.

Fyrir leik
Hvernig leysum við Sveindísi af hólmi?
Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi landsleikjum vegna meiðsla og það er högg fyrir liðið. En á sama tíma er það líka tækifæri fyrir aðra leikmenn að sýna sig og sanna.
Fréttamaður Fótbolta.net ákvað að taka saman nokkrar sviðsmyndir fyrir leikinn á móti Úkraínu hvernig lið Íslands gæti litið út í leiknum.
Það er ljóst að Cecilía Rán Rúnarsdóttir verður í markinu og það er nokkuð öruggt hvernig varnarlínan mun líta út. Á miðsvæðinu er Ída Marín Hermannsdóttir að banka fast á dyrnar eftir flotta frammistöðu að undanförnu og Katla Tryggvadóttir er leikmaður til að fylgjast með, en Alexandra, Hildur og Karólína Lea eru líklegir kostir í þennan leik.
En fremst á vellinum flækjast málin og sérstaklega þar sem Sveindís er ekki með. Við verðum að finna leiðir til að fylla hennar skarð og mögulega þurfum við að breyta leikstílnum eitthvað í fjarveru hennar. Það eru þó ýmsir áhugaverðir kostir.
Í fyrstu sviðsmyndinni kemur Thelma Karen Pálmadóttir inn á vinstri vænginn í stað Sveindísar, Sandra María Jessen er fremst og Diljá Ýr Zomers leikur úti hægra megin. Thelma Karen er með mikinn hraða og getur komið með það að borðinu, en hún er líka mjög teknísk. Sandra hefur skilað mörkum í þýsku Bundesligunni og Diljá er mjög duglegur leikmaður sem getur líka skilað mörkum. Þetta gæti verið áhugaverð blanda.
Svo er það sviðsmynd tvö. Þar breytist það að við fáum Lindu Líf Boama inn í spilið. Hún hefur verið frábær eftir félagaskipti sín til Kristianstad í Svíþjóð og var lífleg í sínum fyrsta landsleikjaglugga núna síðast. Í þessari útfærslu kemur Linda Líf upp á topp í þeim mikla markaham sem hún er í þessa stundina, Sandra María færist út til vinstri og Thelma Karen fer út til hægri. Það getur verið talsvert flæði í þessari sóknarlínu þar sem Linda Líf getur einnig færst út á kantinn.
Svo er það þriðja útfærslan þar sem Hlín Eiríksdóttir kemur inn með sína reynslu. Hún hefur spilað mikinn fjölda landsleikja og er alltaf hörð í horn að taka. Þarna er Linda Líf líka inni og þú ert með Söndru Maríu og Hlín á köntunum. Þarna er möguleiki á enn meira flæði þar sem allir þessir leikmenn geta spilað fremst á vellinum.
Það verður spennandi að sjá hvað Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfarinn, gerir á morgun en hann er klárlega með möguleika í stöðunni.

Fyrri leikurinn á Laugardalsvelli
Fyrri leikur þessara liða í riðlinum fór fram núna 14. apríl síðastliðinn og þar var það Ísland sem hafði betur, 1-0. Sigurmarkið skoraði Alexandra Jóhannsdóttir í byrjun seinni hálfleiks.
Úkraína fékk sína sénsa og varði Cecilía Rán Rúnarsdóttir einu sinni mjög vel í marki Íslands í leiknum.
Það má búast við aðeins öðruvísi leik í dag þar sem Úkraína verður að vinna leikinn, ekkert annað dugir fyrir þær.

Horfðu á öll viðtölin í aðdraganda leiksins
Fréttamaður Fótbolta.net kom til Póllands fyrr í vikunni og hefur tekið viðtöl við leikmenn og þjálfara síðustu daga. Tenglar á þau öll eru hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Af hverju er þessi leikur svona mikilvægur?
Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist í lokakeppni HM og það er stórt markmið núna. Til að halda sem best í þá von er afar mikilvægt að ná í stig gegn Úkraínu í dag, jafntefli eða sigur.
Staðan í riðlinum
England - 12 stig
Spánn - 9 stig
Ísland - 3 stig
Úkraína - 0 stig
England og Spánn eru í sérflokki í riðlinum, eins og flestir bjuggust við. Spánn er ríkjandi heimsmeistari á meðan England er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Spánverjum í úrslitaleik í fyrra.
Sigurvegari riðilsins fer beint á HM en hin þrjú liðin fara í umspil. Þar sem öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar hafa þau þegar tryggt sér sæti í umspilinu.
Þriðja sætið skiptir öllu máli
Fyrir Ísland snýst baráttan fyrst og fremst um að enda í þriðja sæti frekar en því fjórða.
Liðin sem enda í öðru eða þriðja sæti í A-deildar riðlunum fara í svokallaða leið eitt í umspilinu og mæta þar liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Lið sem enda neðst í riðlinum fara hins vegar í leið tvö og mæta liðum úr B-deild.
Munurinn er verulegur. Með því að enda í þriðja sæti eykur Ísland líkurnar á að komast í lokakeppni HM töluvert, enda myndi liðið þá forðast mörg af sterkustu landsliðum Evrópu í umspilinu. Eins og staðan er núna myndi Ísland forðast Spán, Noreg og Frakkland í umspilinu.
Sextán lið komast áfram úr fyrstu umferð umspilsins og mætast síðan í annarri umferð, þar sem lið úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Að lokum standa átta sigurvegarar eftir. Sjö þeirra komast beint á HM á grundvelli árangurs í undankeppninni, en það lið sem er með slakastan árangur fer í alþjóðlegt umspil gegn þjóðum frá öðrum heimsálfum.
Með sigri eða jafntefli gegn Úkraínu í dag tryggir Ísland sér þriðja sætið í riðlinum. Í stóra samhenginu gætu þau úrslit reynst gríðarlega mikilvæg í baráttunni um sögulegt HM-sæti.

Leikið í Póllandi
Stelpurnar komu til Póllands í byrjun vikunnar og hafa verið við æfingar í Kraká, sem er alveg frábær borg. Í gær fór liðið svo yfir til Mielec þar sem leikurinn fer fram. Mielec er um 150 kílómetrum frá landamærum Úkraínu.
Leikurinn fer fram í Póllandi þar sem Úkraína getur ekki spilað heima út af stríðinu þar í landi.
Í Kraká hefur Ísland notað æfingasvæði Garbarnia Kraków en lið félagsins leikur í fimmtu efstu deild í Póllandi. Samt sem áður er æfingasvæði félagsins hið fínasta og segir það sitt að enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace kaus að æfa hérna fyrir 1-3 sigur gegn Shakhtar Donetsk í Sambandsdeildinni á dögunum. Palace endaði á því að vinna keppnina.

1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Arna Eiríksdóttir
7. Katla Tryggvadóttir
9. Diljá Ýr Zomers
11. Birta Georgsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir
15. María Catharina Ólafsd. Gros
17. Ída Marín Hermannsdóttir
22. Linda Líf Boama
23. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Þorsteinn Halldórsson (Þ)
Gul spjöld:
Glódís Perla Viggósdóttir ('9)
Rauð spjöld: