Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er kominn á gott ról með hollenska liðinu AZ Alkmaar en hann hefur byrjað alla vináttuleiki liðsins á undirbúningstímabilinu.
Albert meiddist illa í október á síðasta ári en var að komast á ról er hollensku deildinn var aflýst í apríl.
Hann er mættur tvíefldur til baka en hann hefur byrjað alla æfingaleiki AZ á undirbúningstímabilinu.
Hann spilaði hálfleik í 1-0 tapi AZ gegn Genk og Utrecht og þá lék hann 54 mínútur í kvöld er liðið tapaði með sömu markatölu gegn PEC Zwolle.
Hollenska deildin fer aftur af stað í september.
Aron Jó kom við sögu í jafntefli - Arnór Ingvi á bekknum
Aron Jóhannsson byrjaði á bekknum er Hammarby mætti Falkenberg í sænsku úrvalsdeildinni í dag en kom inná sem varamaður á 54. mínútu. Liðin skildu jöfn, 1-1, en Hammarby er í 7. sæti með 17 stig.
Arnór Ingvi Traustason sat allan tímann á varamannabekknum er Malmö vann Helsingborg 4-1. Malmö er á toppnum með 28 stig eftir þrettán leiki.
Athugasemdir