04.08.26 - 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ólafur Ingi: Stoltið að spila fyrir Breiðablik verður að vera til staðar
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik tapaði gegn Þór á Akureyri í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
„Þetta var afleitur fyrri hálfleikur, við mætum ekki til leiks. Mér fannst leikurinn bera þess merki að stigi þrjú sem í boði voru hefðu verið þeim mun mikilvægari en okkur sem er mikið áhyggjuefni," sagði Ólafur Ingi.
„Við komumst lítt áleiðis. Leikurinn fór að mestu leyti fram á okkar vallarhelming. Þó þeir hafi ekki verið með boltann þá vorum við eiginlega ekki að gera neitt með hann og eftir á í öllum aðgerðum."
Ólafur var spurður að því hvort hann hefði getað gert eitthvað öðruvísi.
„Það er alltaf eitthvað sem maður hugsar. Mér fannst þetta vera meira orkustigið sem var mjög lágt. Maður reynir að gíra menn upp og á þessu stigi á ekki að þurfa að standa á gólinu til að mótivera menn. Ég veit ekki hvað veldur, það er hlutur sem við þurfum að skoða. Þetta var á mjög lágu plani í fyrri hálfleik í dag." sagði Ólafur Ingi.
Breiðablik er í 4. sæti, sex stigum á eftir KR sem á leik til góða.
„Eins og við tölum alltaf um er þetta bara einn leikur í einu. Það er líka hörð samkeppni innan liðsins. Við viljum að menn nýti sín tækifæri þegar þeir fá möguleikann að spila. Það á að vera nóg, þetta snýst bara um að vinna fótboltaleiki. Stoltið að spila fyrir Breiðablik verður að vera til staðar í hverjum einasta leik. Það var það ekki í dag, það er grunnurinn sem þarf að vera alltaf til staðar. Svo geta menn auðvitað átt upp og niður leiki, það kemur fyrir. Því miður var þetta sjálfskaparvíti hvernig við mætum og gefum þeim blóð á tennurnar," sagði Ólafur Ingi.
„Ég hef ekkert áhyggjur af því að þetta verði svona. Þetta hefur ekki verið svona. Við höfum verið að ná ágætis stigasöfnun undanfarið. Það er það sem við höfum verið að líta til að vilja vera á skriði, þetta setur stopp á það. Við vitum að við þurfum að gera miklu betur, þetta snýst um okkur sjálfa. Við þurfum að mæta í hvern einasta leik með blóð á tönnunum og stolt félagsins fyrir brjósti að vilja leggja á sig þá vinnu sem krefst til að vinna fótboltaleiki."