04.08.26 - 21:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ágúst Hlyns: Fannst við baka Blikana í fyrri hálfleik
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór vann frábæran sigur á Breiðabliki á VÍS-vellinum á Akureyri í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Ágúst Eðvald Hlynsson, leikmann Þórs, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
„Við héldum hreinu og börðumst í 90 mínútur og gerðum þetta fyrir hvorn annan. Þegar við höldum hreinu þurfum við bara að skora eitt mark," sagði Ágúst.
Christian Greko Jakobsen skoraði eina mark leiksins eftir hornspyrnu.
„Eiður Ben er að teikna frábærar útfærslur af hornum og loksins eru þau að detta okkur í vil. Við vorum að fá svolítið af mörkum á okkur úr föstum leikatriðum fyrripart móts. Ekki núna og erum farnir að skora úr þeim, það skilur á milli," sagði Ágúst.
Þórsarar pressuðu Blikana mjög stíft.
„Þetta er geggjað. Þetta hentar mér og þessu Þórs DNA. Mér finnst við eiga að vera með yfirhöndina sérstaklega á heimavelli. Það á ekki að vera auðvelt fyrir lið að koma í Þorpið og sækja stig. Mér fannst við baka Blikana í fyrri hálfleik. Það er auðvitað erfitt að gera þetta í 90 mínútur en heilt yfir frábær frammistaða," sagði Ágúst.
Ágúst Eðvald er fyrrum leikmaður Breiðabliks en hann hefur einnig spilað með Val, Víking, Vestra og FH. Er eitthvað extra krydd fyrir þig að spila á móti Blikum?
„Ekki þannig. Ég er að spila á móti mínum fyrrum félögum í annarri hverri umferð. Þetta er ekkert nýtt fyrir mig," sagði Ágúst og hló.