04.08.26 - 22:07
Elvar Geir Magnússon
„Dómarar eru þar með búnir með sínar skiptingar“

Sigurður Hjörtur tók við flautunni.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Hjörtur tók við flautunni.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari fór meiddur af velli í fyrri hálfleik þegar Þór vann Breiðablik í Bestu deildinni í kvöld.
Vilhjálmur fékk aðhlynningu frá sjúkraþjálfara Breiðabliks eftir um 38 mínútna leik en gat ekki haldið áfram og Sigurður Hjörtur Þrastarson, sem var varadómari, tók við flautunni.
Vilhjálmur fékk aðhlynningu frá sjúkraþjálfara Breiðabliks eftir um 38 mínútna leik en gat ekki haldið áfram og Sigurður Hjörtur Þrastarson, sem var varadómari, tók við flautunni.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
„Dómarinn meiðist og þarf skiptingu. Sigurður Hjörtur kemur inn á. Spurning um hvort dómgæslan breytist. Vilhjálmur var búinn að taka sig taki eftir að hann las gagnrýnina. Dómarar eru þar með búnir með sínar skiptingar," skrifaði Sigurður Bibbi í textalýsingu frá leiknum.
Vilhjálmur Alvar hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur en var mættur aftur. Vonandi er þetta bakslag ekki slæmt.
Vilhjálmur Alvar hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur en var mættur aftur. Vonandi er þetta bakslag ekki slæmt.

Sigurður Hjörtur Þrastarson.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
