05.11.26 - 10:17
Kári Snorrason
Arnar vitnar í Alec Baldwin - „Þurfum bara að loka þessu“

Vill loka glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alec Baldwin fór með eitt af aðalhlutverkunum í Glengarry Glen Ross.

Mynd: EPA

Vill loka glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar í komandi landsliðsverkefni.
Ísland er á toppi riðilsins með átta stig, tveimur stigum meira en Eistland sem er í 2. sæti. Vinni Ísland riðilinn fer liðið beint upp í B-deild Þjóðadeildarinnar. Þá gæti sem mestur stigafjöldi tryggt liðinu umspilssæti um að komast á EM 2028.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari vitnaði í eftirminnileg orð Alec Baldwin úr hinni frægu kvikmynd Glengarry Glen Ross þegar hann ræddi leikina tvo við Fótbolta.net í gær.

„Mantran í þessum glugga er bara að klára málið. Bara ein af mínum uppáhaldsmyndum er Glengarry Glen Ross þar sem að fræg setning var A.B.C. 'Always be closing'. Það þarf bara að gera það.
Við þurfum bara að loka þessum glugga. Sýna og sanna að við séum búnir að læra af einhverju sem lið. Af því að við koxuðum á því á móti Úkraínu á sínum tíma,“ sagði Arnar eftir blaðamannafund landsliðsins í gær.
Leikurinn gegn Búlgaríu verður í Plodviv föstudaginn 13. nóvember. Liðið tekur svo á móti Lúxemborg á Laugardalsvelli mánudaginn 16. nóvember.