Fotbolti.net
05.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kuyt: Mjög sérstakt kvöld fyrir mig

Kuyt: Mjög sérstakt kvöld fyrir mig
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Dirk Kuyt var ráðinn bráðabirgðastjóri Fenerbahce á dögunum og hann stýrði öðrum leik sínum í gær þegar liðið vann 3-2 sigur á Liverpool í Meistaradeildinni.

Kuyt er 46 ára gamall Hollendingur en hann spilaði með Liverpool frá 2006-2012.
„Það er magnað að spila á móti mínu gamla félagi sem hefur svo mikla þýðingu fyrir mig. Það er líka magnað að vera þjálfari Fenerbahce," sagði Kuyt.

„Þessi leikur fór nákvæmlega eins og við vonuðumst eftir. Liverpool er svo frábært lið með mikil einstaklingsgæði, það er nánast ómögulegt að fá ekki á sig mark. Þetta var frábær frammistaða hjá leikmönnunum en þetta var auðvitað mjög sérstakt kvöld fyrir mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.