05.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrrum aðstoðarmaður Ten Hag orðinn þjálfari Andra Fannars

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alfred Schreuder hefur verið ráðinn stjóri tyrkneska félagsins Kasimpasa út tímabilið. Hann kemur inn fyrir Emre Belozoglu sem var ráðinn stjóri Fenerbahce á dögunum.
Schreuder er 54 ára gamall Hollendingur en hann var aðstoðarþjálfari Ajax undir stjórn Erik ten Hag frá 2018 til 2022 þegar hann var ráðinn aðalþjálfari liðsins eftir að Ten Hag tók við Man Utd.
Hann var einnig aðstoðarþjálfari Ronald Koeman hjá Barcelona og Nagelsmann hjá Hoffenheim á sínum tíma. Hann aðstoðaði einnig Nagelsmann með þýska landsliðið á HM síðasta sumar.
Kasimpasa er í 5. sæti tyrknesku deildarinnar með 17 stig eftir 10 umferðir. Andri Fannar Baldursson er leikmaður liðsins en hann hefur komið við sögu í sjö deildarleikjum.