05.11.26 - 07:45
Elvar Geir Magnússon
Rússi undir smásjám Man Utd, Arsenal og Chelsea

Aleksey Batrakov.

Mynd: EPA

Unai Emery.

Mynd: EPA

Alisson Becker.

Mynd: EPA

Aleksey Batrakov.

Mynd: EPA

Ungur rússneskur miðjumaður er orðaður við stórlið í ensku úrvalsdeildinni og útlit er fyrir að stjóri Aston Villa geri nýjan samning við félagið. Þetta og fleira í fimmtudagsslúðrinu.
Manchester United, Arsenal og Chelsea fylgjast öll með rússneska miðjumanninum Aleksey Batrakov (21) sem skoraði bæði mörk Galatasaray í sigri á Stuttgart í Meistaradeildinni. (Teamtalk)
Varnarmaðurinn Jacobo Ramon (21) sem leikur með Como er einnig á óskalista Manchester United. Félagið gæti þó þurft að keppa við Chelsea um Spánverjann. (Teamtalk)
Aston Villa er langt komið í viðræðum við stjórann Unai Emery um nýjan samning, hann hefur verið orðaður við Manchester United. (Telegraph)
Búist er við að Trey Nyoni (19), miðjumaður Liverpool, skrifi undir nýjan samning við félagið. Þetta kemur í kjölfar þess að 30 milljóna punda tilboði frá Nottingham Forest var hafnað í sumar. (Athletic)
Leeds United gæti samið við Harvey Elliott (23), miðjumann Liverpool, í janúar en Valencia hyggst binda enda á lánssamning enska leikmannsins. (Football Insider)
Everton hefur augastað á brasilíska sóknarmanninum Vitor Roque (21) sem leikur með Palmeiras. Talið er að verðmiðinn á honum sé um 42 milljónir punda. (Sport)
Rafa Benítez, fyrrum stjóri Liverpool og Chelsea, vill snúa aftur til starfs í ensku úrvalsdeildinni. (Talksport)
Flamengo í Brasilíu hefur sýnt markverði Liverpool, Alisson Becker, áhuga, en samningur Brasilíumannsins við félagið rennur út í júní. (Sport Witness)
Ólíklegt þykir að Barcelona semji við varnarmann Inter, Federico Dimarco (28), þar sem ítalska félagið hefur nýtt sér ákvæði um eins árs framlengingu á samningi hans. (Sport)
Leikmenn Newcastle eru áttavilltir varðandi það hvers stjórinn Matthias Jaissle ætlast til af þeim. (Mail)