Koné fer til Manchester - Zirkzee fær loforð frá Roma - Chelsea og Villa skoða Santi Castro - John Terry til Oxford? - Aké eftirsóttur
   fim 05. desember 2019 19:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Arsenal og Brighton: Þrjár breytingar hjá Arsenal
Klukkan 20:15 hefst seinni leikur kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Þá mætast Arsenal og Brighton á Emirates vellinum.

Arsenal situr í 10. sæti og Brighton er í 16. sætinu. Brighton fór vel af stað á tímabilinu en gengið liðsins hefur versnað undanfarið. Arsenal hefur ollið vonbrigðum á leiktíðinni og stýrir Freddie Ljungberg liðinu í annað skiptið í dag eftir að Unai Emery var rekinn fyrir síðustu helgi.

Arsenal hefur ekki unnið deildarleik síðan í byrjun október þegar liðið lagði Bournemouth, 1-0 á heimavelli. Lucas Torreira, Sokratis og Hector Bellerin koma allir inn frá jafnteflinu gegn Norwich um helgina.

Brighton hefur tapað síðustu þremur deildarleikjum sínum.

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Bellerin, Sokratis, Luiz, Kolasinac, Xhaka, Torreira, Willock, Özil, Lacazette, Aubameyang.

Varamenn: Martinez, Chambers, Tierney, Guendouzi, Nelson, Pepe, Martinelli.

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Alzate, Dunk, Webster, Burn, Stephens, Pröpper, Gross, Mooy, Maupay, Connolly.

Varamenn: Button, Duffy, Bernardo, Montoya, Bissouma, Trossard, Murray.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 18 13 3 2 33 11 +22 42
2 Man City 18 13 1 4 43 17 +26 40
3 Aston Villa 18 12 3 3 29 19 +10 39
4 Liverpool 18 10 2 6 30 26 +4 32
5 Chelsea 18 8 5 5 30 19 +11 29
6 Man Utd 18 8 5 5 32 28 +4 29
7 Sunderland 17 7 6 4 19 17 +2 27
8 Brentford 18 8 2 8 28 26 +2 26
9 Crystal Palace 17 7 5 5 21 19 +2 26
10 Fulham 18 8 2 8 25 26 -1 26
11 Everton 18 7 4 7 18 20 -2 25
12 Brighton 18 6 6 6 26 25 +1 24
13 Newcastle 18 6 5 7 23 23 0 23
14 Tottenham 17 6 4 7 26 23 +3 22
15 Bournemouth 18 5 7 6 27 33 -6 22
16 Leeds 17 5 4 8 24 31 -7 19
17 Nott. Forest 18 5 3 10 18 28 -10 18
18 West Ham 18 3 4 11 19 36 -17 13
19 Burnley 18 3 3 12 19 34 -15 12
20 Wolves 18 0 2 16 10 39 -29 2
Athugasemdir
banner
banner