Fotbolti.net
23.11.26 - 11:29
Elvar Geir Magnússon

Hefði orðið undrandi ef rauða spjaldið hefði ekki farið á loft

Hefði orðið undrandi ef rauða spjaldið hefði ekki farið á loft
Canon

Mynd: EPA

Dermot Gallagher, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, tjáði sig við Sky Sports um rauða spjaldið sem Leny Yoro, varnarmaður Manchester United, fékk gegn Liverpool í gær.

„Ef þú horfir á þetta frá sjónarhóli dómarans. Er þetta brot? Það er fyrsta skrefið. Já. Er hann með boltann? Frá þessu sjónarhorni, já. Ég held að flestir hefðu búist við rauðu spjaldi. Það hefði komið á óvart í leiknum ef rautt spjald hefði ekki farið á loft,“ segir Gallagher.

Sam Barrott dómari taldi Yoro hafa rænt Alexander Isak upplögðu marktækifæri snemma leiks og gaf rautt spjald. Liverpool skoraði úr aukaspyrnunni í kjölfarið og vann leikinn á endanum 4-0.
Var Isak með stjórn á boltanum?
TENGT EFNI

Var Isak með stjórn á boltanum?

„Ég held að ef hann hefði ekki gefið rauða spjaldið hefði hann getað sloppið við það með því að segja að Isak hafi ekki haft stjórn á boltanum. Ég get skilið sjónarhorn beggja aðila. Þú verður að meta hvar Lammens var. Boltinn var næstum því í höndunum á honum," segir Tim Sherwood, sérfræðingur Sky.


Dermot Gallagher.

Dermot Gallagher.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.