FH rekið með tapi síðustu fjögur árin

Kaplakrikavöllur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kaplakrikavöllur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur verið rekið með tapi síðustu fjögur árin. Uppsöfnuð afkoma á tímabilinu er neikvæð um 96 milljónir króna. Ef einungis er litið á rekstrarafkomu þá er hún neikvæð um 54 milljónir króna. Það sem skýrir þennan mun á rekstrarafkomunni og afkomunni eru fjármagnsliðirnir. Á síðasta ári voru 9 milljónir króna gjaldfærð í vaxtagjöld og gengismun, það er vegna þess að FH er meðal annars með langtímaskuldir við lánastofnanir sem og yfirdrátt.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 8. nóvember á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Eignir FH lækkuðu hressilega á milli ára og voru samtals 87 milljónir króna í árslok 2025. Árið áður höfðu þær verið 148 milljónir króna og því er um að ræða lækkun upp á 61 milljón króna eða sem um nemur 41% lækkun. Það sem lækkaði fyrst og fremst milli ára voru viðskiptakröfur sem fóru úr 101 milljón króna niður í 43 milljónir króna. Handbært fé stóð í 6,6 milljónum króna og hefur verið á svipuðu reiki síðustu fimm árin.
Skuldir FH lækkuðu verulega á milli ára og fóru úr 148 milljónum króna í 86 milljónir króna. Sá skuldaliður sem lækkaði mest hjá FH voru viðskiptaskuldir sem lækkuðu um 26 milljónir króna. Þar á eftir lækkaði yfirdrátturinn um 17 milljónir króna og fór úr 47 milljónum króna niður í 30 milljónir króna. Þá lækkuðu langtímaskuldir við lánastofnanir um tæplega 10 milljónir króna. Eins og sést í fjármagnsliðunum þá sliga vaxtagjöld afkomuna. Því er gott að FH hafi náð að lækka þessar skuldir sem bera án efa háa vexti í því efnahagsástandi sem ríkir á Íslandi.

