Fotbolti.net
23.11.26 - 10:00
Víðir Sigurðsson

Bjarni Jó 1: Krafturinn í Austfjarðafótboltanum mótaði mig

Lið Þróttar í Neskaupstað fyrir leik gegn ÍBÍ á Ísafirði í næstefstu deild árið 1977. Aftari röð frá vinstri: Viðar H. Sveinsson, Magnús Magnússon, Þórhallur Jónasson, Bjarni Jóhannsson, Jóhann G. Kristinsson, Eiríkur Þ. Magnússon, Njáll Eiðsson, Guðmundur Bjarnason liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Björgúlfur Halldórsson, Axel Aðalsteinsson, Sigurður Friðjónsson, Magni Björnsson, Ágúst Þorbergsson, Magnús Jónatansson (Daddi) þjálfari, Einar Sigurjónsson.

Lið Þróttar í Neskaupstað fyrir leik gegn ÍBÍ á Ísafirði í næstefstu deild árið 1977. Aftari röð frá vinstri: Viðar H. Sveinsson, Magnús Magnússon, Þórhallur Jónasson, Bjarni Jóhannsson, Jóhann G. Kristinsson, Eiríkur Þ. Magnússon, Njáll Eiðsson, Guðmundur Bjarnason liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Björgúlfur Halldórsson, Axel Aðalsteinsson, Sigurður Friðjónsson, Magni Björnsson, Ágúst Þorbergsson, Magnús Jónatansson (Daddi) þjálfari, Einar Sigurjónsson.

Canon

Mynd: Jóhann G. Kristinsson

Bjarni Jóhannsson skýrði frá því fyrr í haust að nú væri þjálfaraferli hans endanlega lokið. Bjarni þjálfaði meistaraflokkslið í knattspyrnu nær samfleytt frá 1983 til 2025 og er leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar í deildakeppni hér á landi.

Hann stýrði liðum sem aðalþjálfari á Íslandsmóti í samtals 666 leikjum, frá árinu 1983, þar af 256 í efstu deild karla, og vann Íslandsmeistaratitilinn tvívegis með ÍBV ásamt því að verða bikarmeistari með bæði ÍBV og Fylki. Þá stýrði Bjarni liðum sjö sinnum upp um deild á ferlinum. Til viðbótar starfaði Bjarni fjögur ár sem aðstoðarþjálfari, eitt ár í Noregi, eitt ár hjá Fram og tvö ár með karlalandsliði Íslands.

Bjarni er eini Íslendingurinn sem hefur farið yfir 600 leiki sem þjálfari í deildakeppni Íslandsmótsins. Þar fyrir utan eru bikarleikir, Evrópuleikir ásamt öðrum mótum þannig að heildarleikirnir á ferlinum nálgast þúsundið.



Undirritaður hefur sest niður með Bjarna nokkrum sinnum á undanförnum mánuðum til að skrásetja þennan langa feril og afraksturinn af því mun birtast í greinaflokki hér á Fótbolta.net á næstu vikum.

Í fyrsta hlutanum í dag eru það heimaslóðirnar austur í Neskaupstað sem eru til umfjöllunar en Bjarni segir að lífið og fótboltinn á Austfjörðunum hafi mótað sig fyrir lífstíð.

Byrjaði að þjálfa fjórtán ára
Bjarni er Norðfirðingur, fæddur árið 1958 í Neskaupstað og ólst þar upp. Hann kveðst ekki gera sér fulla grein fyrir því hvernig og hvers vegna hann fór að þjálfa til að byrja með en fyrstu verkefnin fékk hann 14 ára gamall þegar honum var falið að sjá um yngstu flokkana í fótbolta hjá Þrótti í heimabænum árið 1972. Sá sem þetta skrifar er líka Austfirðingur og man einmitt fyrst eftir Bjarna þetta sama sumar eftir að hafa mætt honum í leik í 4. flokki á Norðfjarðarvelli, en þar var hann aðalmaðurinn í gulklædda liðinu. Keppnisbúningur Þróttar var gulur frá toppi til táar.

„Ég veit ekki – sennilega hefur alltaf blundað einhver leiðtogi í mér. Sem krakki reyndi ég auðvitað að taka þátt í öllu sem kostur var á og það var svo sem ekki um auðugan garð að gresja á Norðfirði. Það var ekki einu sinni íþróttahús í bænum fyrstu árin sem ég æfði fótbolta, ég var 10-12 ára þegar það var tekið í notkun. En ég man að ég tók að mér 14 ára gamall að þjálfa unga drengi í fótbolta, og það var fyrst og fremst innanhúss um veturinn. Líklega hef ég verið tilbúinn í þetta, þorað að taka af skarið og axla ábyrgð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.