Fotbolti.net
22.11.26 - 22:25
Ívan Guðjón Baldursson

Bruno: Fer burt þegar félagið vill að ég fari

Bruno: Fer burt þegar félagið vill að ég fari
Canon

Mynd: PFA

Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United rennur út á samningi næsta sumar en Rauðu djöflarnir eru með möguleika á að virkja eins árs framlengingu.
Fernandes: Gæti farið eitthvert annað og fengið miklu betur borgað en hjá Man Utd
TENGT EFNI

Fernandes: Gæti farið eitthvert annað og fengið miklu betur borgað en hjá Man Utd

Mikið hefur verið rætt um möguleg félagaskipti Fernandes frá félaginu á undanförnum árum, en alltaf hefur Portúgalinn kosið að vera áfram þrátt fyrir slæmt gengi liðsins.

„Að mínu mati hafa stuðningsmenn verið alltof þolinmóðir við okkur. Mitt markmið mun alltaf vera að vinna deildina og Meistaradeildina, sama fyrir hvaða félag ég spila," sagði Fernandes í viðtali við Sky Sports sem var birt fyrir stórleik Man Utd gegn Liverpool fyrr í dag.

„Ég mun aldrei segja að markmiðið sé að komast í topp fjóra. Nei, nei, ég er hérna til þess að sigra.

„Ég hef fengið mörg tækifæri til að skipta um félag á síðustu þremur árum en ég kaus alltaf að vera áfram hjá United."


Fernandes er 32 ára gamall og vill Man Utd gera nýjan samning við fyrirliðann sinn.

„Ég hef alltaf sýnt hversu mikla ást ég hef fyrir þessu félagi og hversu mikið mig langar að sigra í þessari treyju. Ég hef alltaf sagt að ég mun fara burt þegar félagið vill að ég fari.

„Ég ætla ekki að vera sú tegund af leikmanni sem ég hef oft séð á dvöl minni hjá Manchester United. Leikmenn sem eru bara sáttir með að klára samninginn sinn hjá félaginu og sjá svo til hvað gerist. Ég er ekki þessi tegund af leikmanni."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.