Fotbolti.net
22.11.26 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson

„Pépé meiddist ekki við að horfa á sólina"

„Pépé meiddist ekki við að horfa á sólina"
Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Villarreal hefur gefið út yfirlýsingu vegna falsfrétta um aðgerð sem Nicolas Pépé þurfti að gangast undir í haust vegna augnvandamáls.
Kantmaðurinn, sem var eitt sinn dýrasti leikmaður í sögu Arsenal, missti af þremur vikum eftir aðgerðina og hefur verið að spila með grímu til að hlífa svæðinu.

Falsfréttir hafa dreifst hratt um samfélagsmiðla sem segja að Pépé hafi orðið fyrir meiðslum á auga við að horfa beint á sólina í sólmyrkvanum í ágúst. Myndbönd af Pépé horfandi á sólmyrkvann hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum, en Villarreal segir hlutina ekki tengjast.

Pépé spilaði alla leiki Villarreal nema einn í ágúst og september áður en hann fór í minniháttar aðgerð í október.

„Villarreal vill taka það fram að færslur og fréttir á ýmsum miðlum um augnaðgerð Nicolas Pépé eru byggðar á uppspuna og lygum," segir meðal annars í yfirlýsingu frá félaginu.

„Dagsetning aðgerðarinnar var ákveðin löngu fyrirfram og hafði ekkert með sólmyrkvann að gera. Félagið vill hvetja miðla til þess að vanda sig þegar kemur að því að greina frá heilsufarsmálum fótboltamanna."


„Pépé meiddist ekki við að horfa á sólina"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.