Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. desember 2020 07:30
Aksentije Milisic
McTominay gagnrýnir leikmenn PSG
Mynd: Getty Images
Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, gagnrýndi leikmenn PSG í viðtali en hann var ekki sáttur við framkomu þeirra þegar United tapaði 3-1 gegn PSG á Old Trafford í vikunni.

McTominay og Neymar lenti saman þegar flautað var til leikhlés en McTominay var búinn að taka hart á Neymar nokkrum sinnum í leiknum.

McTominay var spurður út í PSG liðið og hann sagði að þeir spiluðu ekki fótbolta í leiknum.

„Þeir detta mjög auðveldlega. Þú getur séð það, er það ekki? Þetta er ekki fótbolti þegar menn spila svona. Hvernig þeir bregðast við...ég hef ekkert meira um það að segja. Þú kemst í vandræði ef þú talar um það og dómarann," sagði McTominay.

United þar að sækja stig, hið minnsta, þegar liðið fer til Þýskalands eftir helgi og mætir Leipzig, ætli liðið sér að komast í útsláttarkeppnina.
Athugasemdir
banner
banner