Fotbolti.net
06.02.21 - 12:46
Brynjar Ingi Erluson

Eva Núra í Selfoss (Staðfest)

Eva Núra og Alfreð Elías við undirskrift í dag

Eva Núra og Alfreð Elías við undirskrift í dag

Canon

Mynd: Selfoss

Kvennaboltinn
Eva Núra Abrahamsdóttir er gengin til liðs við Selfoss frá FH en þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum í dag.
Eva Núra er 26 ára gömul og spilar stöðu miðjumanns en hún er uppalin hjá Fylki.

Hún á að baki 109 leiki í efstu deild fyrir Fylki og FH en hún lék 14 leiki í Pepsi Max-deildinni með FH á síðasta tímabili. Þá hefur hún einnig spilað fyrir Hauka í 1. deildinni. Eva á þá 1 A-landsleik að baki og 12 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Eva er nú gengin til liðs við Selfoss og mun spila með liðinu á komandi leiktíð.

„Ég er virkilega sáttur með að fá Evu Núru til okkar. Hún er góður leikmaður með mikla reynslu og hefur eiginleika sem eiga eftir að nýtast okkur vel í sumar," sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfyssinga.

Selfoss hafnaði í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðasta tímabili með 22 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.