John Cross, íþróttastjóri Mirror, segir að það sé glórulaust hversu langan tíma taki að dæma í þeim 115 ákærum sem Manchester City fékk vegna meintra fjármálabrota í ensku úrvalsdeildinni.
Málin hafa verið í kerfinu í þrjú ár og segir Cross það vera vanvirðingu fyrir enska boltann að enn virðist langt í niðurstöðu.
Málin hafa verið í kerfinu í þrjú ár og segir Cross það vera vanvirðingu fyrir enska boltann að enn virðist langt í niðurstöðu.
„Þetta er vandræðalegt, ljótur blettur á efstu deild enska boltans og enginn veit við hverju má búast. City hefur skiljanlega haldið áfram eins og venjulega og Pep Guardiola hefur í sífellu sýnt afstöðu félagsins stuðning; um að þeir verði hreinsaðir af sök," segir Cross.
„Við hin þurfum bara að giska hvort City fái dóm eða sé saklaust, verði dæmt niður, stig tekin af félaginu eða það fái risastóra sekt. Það er svo rangt að þetta taki svona langan tíma. Þetta er ekki sanngjarnt gagnvart City og ekki heldur gegn keppinautum þeirra. Þetta er ekki sanngjarnt gagnvart stuðningsmönnum, sama hvaða lið þeir styðja."
Athugasemdir




