banner
   lau 06. mars 2021 19:41
Victor Pálsson
Lengjubikarinn: Mikil dramatík í C-riðli
Mynd: Kormákur/Hvöt
Dramatíkin var verulega mikil á Domusnovavellinum í dag þegar KB og Kormákur/Hvöt áttust við í C-deild Lengjubikarsins.

Þessum leik lauk með 3-3 jafntefli en fjögur af þessum sex mörkum voru skoruð þegar lítið var eftir af leiknum.

Ingvi Rafn Ingvarsson gerði tvö mörk fyrir Kormák/Hvöt með stuttu millibili undir lokin og breytti stöðu leiksins úr 2-1 í 3-2 fyrir gestaliðinu.

KB játaði sig þó ekki sigrað og þegar þrjár mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma jafnaði Aakash Gurung fyrir liðið í leik sem endaði með 3-3 jafntefli.

Í hinum leik C-riðilsins spilaði KFR við lið Samherja og fagnaði sannfærandi 4-0 sigri.

KB 3 - 3 Kormákur/Hvöt
0-1 Sigurður Bjarni Aadnegard('8)
1-1 Eyþór Guðmundsson('64)
2-1 Praveen Gurung('83)
2-2 Ingvi Rafn Ingvarsson('87)
2-3 Ingvi Rafn Ingvarsson('88)
3-3 Aakash Gurung('93)

KFR 4 - 0 Samherjar
1-0 Stefán Bjarki Smárason('49)
2-0 Ívan Breki Sigurðsson('57)
3-0 Helgi Valur Smárason('71)
4-0 Ívan Breki Sigurðsson('87)

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner