Inter Miami varð bandarískur meistari á síðustu leiktíð og það er hefð í Bandaríkjunum að meistaralið heimsæki forsetann í Hvíta húsinu og það var engin undantekning á því hjá Inter Miami.
Lionel Messi er að sjálfsögðu stærsta stjarna liðsins en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði nokkur orð um hann.
Lionel Messi er að sjálfsögðu stærsta stjarna liðsins en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði nokkur orð um hann.
Margir ræða bestu leikmenn sögunnar en þar er Brasilíumaðurinn Pele oft nefndur til sögunnar en Trump telur að Messi sé betri en hann.
„Ég ætti ekki að segja þetta því menn segja að ég er gamall en ég horfði á Pele spila. Við byrjuðum á Pele en þú gætir verið betri en Pele, hvor er betri? ég held að hann sé betri," sagði Trump og benti á Messi.
Trump to Messi: "I'm old but I watched Pele play for the Cosmos. You may be better than Pele. Who's better? I think he is but Pele was pretty good."
by
u/The_Big_Untalented in
soccer
Athugasemdir

