Það var hart tekist á í Bikarkvöldi á RÚV í kvöld eftir leik KR og Vals í Egilshöllinni í kvöld.
KR vann leikinn örugglega 4-2. Þegar tæplega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma var Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, hátt uppi á vellinum og fór af hörku í Tryggva Hrafn Haraldsson.
Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, dæmdi aukaspyrnu á Tryggva. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, og Hörður Magnússon, sem lýsti leiknum, rifust um atvikið í Bikarkvöldi.

Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
„Ég var ómyrkur í máli í lýsingunni. Þessi endursýning staðfestir enn og aftur að þetta er rautt spjald. Hann kemur á blindu hliðina, glæfralegt, hann nær vissulega eitthvað til boltans en tekur manninn niður," sagði Hörður.
„Hann tekur bara boltann Höddi," sagði Óskar. „Á hann að hverfa ofan í jörðina?" Spurði þá Hörður.
„Ef hafsent kemur og skallar hann og tekur sóknarmanninn með sér, það er ekki aukaspyrna," sagði Óskar.
Höddi furðaði sig á því að markmaðurinn væri kominn svona langt út.
„Hann er hluti af liðinu. Ætlaru að segja við hann: Þú mátt ekki gera þetta og þetta. Ef þú átt þrjú börn og þú segir við yngsta barnið: Þú mátt því miður ekki borða með okkur í dag, þú verður að borða út á svölum. Ég segi ekki rautt, auðvitað er ég ekki með hlutlaus gleraugu, ég er með KR gleraugun á mér alla daga."
Þeir luku umræðunni á léttu nótunum en Hörður spurði hann hvað hann myndi segja um svona atvik í HM stofunni í sumar.
„Vel hreinsað! Vel lesið," sagði Óskar og það var hlegið af þessu að lokum í settinu.