Endurkoma á Trafford? - Liverpool vill Eze - Pogba til Bandaríkjanna - Duran til Madríd?
banner
   þri 06. maí 2014 17:38
Magnús Már Einarsson
Breiðablik og KR mætast í Garðabæ
Samsung völlurinn.
Samsung völlurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og KR mætast í 2. umferð Pepsi-deildarinnar á Samsung vellinum í Garðabæ á fimmtudag klukkan 19:15.

Kópavogsvöllur kemur illa undan vetri eins og fleiri vellir á höfuðborgarsvæðinu og hann er ekki klár í slaginn fyrir leikinn á fimmtudagskvöld.

Blikar víxluðu á heimaleik við FH-inga í fyrstu umferð en sá leikur fór fram á Kaplakrikavelli í gær en ekki í Kópavoginum.

Samsung völlurinn er ekki í notkun á fimmtudagskvöld þar sem Stjörnumenn eiga útileik við ÍBV í Vestmannaeyjum.

Þetta þýðir að þrír af sex leikjum í annarri umferðinni fara fram á gervigrasi en Víkingur og Fram mætast á gervigrasvellinum í Laugardal sem og Valur og Keflavík.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner