Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 19:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Skoraði tvö mörk beint úr hornspyrnu
Kvenaboltinn
Andrea Mist Pálsdóttir
Andrea Mist Pálsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Árnadóttir
Margrét Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 2 - 2 Stjarnan
0-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('8 )
0-2 Andrea Mist Pálsdóttir ('40 )
1-2 Amalía Árnadóttir ('75 )
2-2 Margrét Árnadóttir ('90 )
Lestu um leikinn

Stjarnan heimsótti Þór/KA í Bestu deild kvenna í kvöld. Stjarnan komst yfir snemma leiks.

Andrea Mist Pálsdóttir tók hornspyrnu og Allesandra Augur, í marki Þórs/KA, tókst ekki að slá boltann frá og Andrea skoraði beint úr hornspyrnunni.

Þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks tvöfaldaði Andrea forystu Stjörnunnar þegar hún skoraði öðru sinni beint úr hornspyrnu.

Snædís María Jörundsdóttir fékk algjört dauðafæri til að skora þriðja mark Stjörnunnar strax í upphafi seinni hálfleiks. Hún komst ein í gegn og var á undan Augur í marki Þórs/KA í boltann en setti hann framhjá á opið markið.

Þór/KA minnkaði muninn þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Birgitta Rún Finnbogadóttir átti fyrirgjöf og Amalía Árnadóttir skallaði boltann í netið.

Þór/KA sótti í sig veðrið í kjölfarið og Margrét Árnadóttir, systir Amalíu, jafnaði metin undir lokin þegar hún skoraði eftir hornspyrnu frá Elísu Bríeti Bjarnadóttur.

Margrét var hársbreidd frá því að fullkomna endurkomuna í blálokin en skaut rétt framhjá eftir sendingu frá Amalíu. Jafntefli var niðurstaðan, Stjarnan er í 4. sæti með fjögur stig en Þór/KA er í 8. sæti með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍBV 3 3 0 0 10 - 7 +3 9
2.    Breiðablik 2 2 0 0 4 - 0 +4 6
3.    Þróttur R. 3 2 0 1 5 - 3 +2 6
4.    Stjarnan 2 1 0 1 3 - 2 +1 3
5.    Víkingur R. 2 1 0 1 4 - 4 0 3
6.    Grindavík/Njarðvík 2 1 0 1 3 - 3 0 3
7.    Valur 3 1 0 2 4 - 6 -2 3
8.    FH 2 0 1 1 2 - 3 -1 1
9.    Þór/KA 2 0 1 1 2 - 3 -1 1
10.    Fram 3 0 0 3 3 - 9 -6 0
Slapp
banner