Það eru fjórir leikir á dagskrá í Bestu deild kvenna í dag og í kvöld og hefst fjörið á Hlíðarenda þegar Valur fær ÍBV í heimsókn.
Nýliðar ÍBV eru með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á meðan Valur er með þrjú stig eftir tap gegn Stjörnunni í síðustu viku.
Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn á Akureyri og hefjast kvöldleikirnir eftir lokaflautið á VÍS vellinum.
Víkingur R. tekur á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks á sama tíma og FH spilar við sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur.
Besta deild kvenna
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 Þór/KA-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
19:15 FH-Grindavík/Njarðvík (Kaplakrikavöllur)
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 4 | 4 | 0 | 0 | 11 - 4 | +7 | 12 |
| 2. ÍBV | 4 | 4 | 0 | 0 | 12 - 7 | +5 | 12 |
| 3. FH | 4 | 2 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 7 |
| 4. Þróttur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 5 | +1 | 6 |
| 5. Grindavík/Njarðvík | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 6 | 0 | 6 |
| 6. Víkingur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 7 - 8 | -1 | 6 |
| 7. Stjarnan | 4 | 1 | 1 | 2 | 6 - 6 | 0 | 4 |
| 8. Valur | 4 | 1 | 0 | 3 | 6 - 9 | -3 | 3 |
| 9. Þór/KA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 7 | -3 | 2 |
| 10. Fram | 4 | 0 | 0 | 4 | 3 - 10 | -7 | 0 |


