Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 21:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: PSG mætir Arsenal í úrslitum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bayern 1 - 1 Paris Saint Germain (5-6 samanlagt)
0-1 Ousmane Dembele ('3 )
1-1 Harry Kane ('90 )

Ríkjandi Evrópumeistarar PSG er komið í úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur á Bayern í mögnuðu undanúrslitaeinvígi.

PSG fékk draumabyrjun þar sem Ousmane Dembele skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik. Khvicha Kvaratskhelia komst inn á teiginn og sendi boltann út á Dembele sem skoraði með skoti yfir Manuel Neuer.

Michael Olise var nálægt því að jafna metin eftir tæplega hálftíma leik þegar hann átti skot sem fór í slánna.

Stuttu síðar urðu Bæjarar mjög ósáttir. Nuno Mendes fékk boltann í höndina og þeir vildu sjá hans annað gula spjald fara á loft en dómarinn dæmdi hendi á Konrad Laimer í aðdragandanum.

Strax í kjölfarið sparkaði Vitinha boltanum í höndina á Joao Neves inn í vítateig PSG en dómarinn dæmdi ekkert við litla hrifningu leikmanna Bayern.

Bayern gekk illa að ógna Matvei Safonov í marki PSG í seinni hálfleik en PSG var líklegt til að bæta við mörkum. Bayern fékk gott tækifæri til að setja spennu í leikinn undir lokin.

Lennart Karl átti skot sem Willian Pacho komst fyrir en boltinn barst til Laimer sem skaut einnig í varnarmann. Leikmenn Bayern kölluðu eftir vítaspyrnu en ekkert dæmt.

Þegar skammt var til loka leiksins fékk Harry Kane Boltann inn í teignum og hann skoraði með föstu skoti í nærhornið og jafnaði metin. PSG var enn marki yfir í einvíginu og Bayern hafði lítinn tíma til að jafna einvígið.

Það tókst ekki hjá þýska liðinu og PSG er komið í úrslit Meistaradeildarinnar, annað árið í röð, og mætir Arsenal þann 30. maí.
Slapp
banner
banner