Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 15:45
Fótbolti.net
Meistaraspáin - Verður sturlaður fótboltaleikur
Bayern er á heimavelli í kvöld.
Bayern er á heimavelli í kvöld.
Mynd: EPA
Gylfi og Óskar Smári eru sérfræðingarnir.
Gylfi og Óskar Smári eru sérfræðingarnir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arsenal komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær og í kvöld ræðst það hvort það verði Bayern München eða Paris Saint-Germain sem mætir Lundúnafélaginu þar.

Fyrri leikur þessara liða var einhver rosalegasti fótboltaleikur sem spilaður hefur verið, en hann endaði með 5-4 sigri PSG. Leikurinn í kvöld fer fram í München.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Bayern München 7 - 3 PSG
Kane, Kane, Kane, Olise, Diaz, Kimmich, Davies, Kvaratskhelia, Dembele og Doue með mörkin. Áhugaverður leikur.

Óskar Smári Haraldsson
Bayern München 2 - 1 PSG
Hvað á maður að segja eftir fyrri leik liðanna? Þvílík veisla sem sá leikur var og ég held að þessi verði ekkert síðri þrátt fyrir kannski færri mörk skoruð. Luis Diaz er í Bayern en hann skorar í venjulegum leiktíma og skýtur Bayern áfram í framlengingunni.

Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bayern 3 - 3 PSG
Eins og fyrri leikurinn, þá verður þetta sturlaður fótboltaleikur. Sóknarleikurinn í fyrrirúmi og PSG kemst áfram eftir heilmikla dramatík. Ætla að giska á Joao litli Neves verði hetjan sem skilar Parísarbúum í úrslitaleikinn annað árið í röð.

Staðan í heildarkeppninni:
Gylfi Tryggva - 30
Óskar Smári - 28
Fótbolti.net - 21
Slapp
banner
banner
banner
banner