Björninn, sem leikur í 4. deild, hefur fengið til liðs við sig tvo leikmenn sem koma báðir frá KFS í Vestmannaeyjum.
Hallgrímur Heimisson er það annars vegar. Hallgrímur, sem er sonur Heimis Hallgrímssonar fyrrum landsliðsþjálfara, er varnarmaður.
Svo er það Jóhann Norðfjörð hins vegar, en hann leikur sem sóknarmaður.
Björninn leikur í B-riðli í 4. deild karla í sumar. Í þeim riðli eru einnig Álafoss, KFR, Kormákur/Hvöt, Skandinavía, Snæfell, SR og Stokkseyri.
Litla sendingin sem við vorum að fá frá Eyjum. Kynþokkafullir á velli sem og utan 🤤 Svo eru þeir af mjög góðum ættum ⚽️
— Björninn.FC (@BjorninnF) June 5, 2020
Hlökkum til að sjá þá á vellinum í sumar 🤩 pic.twitter.com/7sndJOPEUX
Athugasemdir