Fotbolti.net
06.06.20 - 18:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pétur: Þegar þú nýtir ekki færin þá getur komið vesen

Auglýsing
Pétur: Þegar þú nýtir ekki færin þá getur komið vesen
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Ég er náttúrulega alltaf svekktur að tapa," sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir 1-2 tap gegn Selfoss í Meistarakeppni KSÍ.

Smelltu hér til að lesa textalýsingu úr leiknum - ATH: Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
„Mér fannst við spila ágætlega framan af og fengum færi sem við áttum að nýta. Fengum í upphafi seinni hálfleiks færi til að klára leikinn. Mér fannst við spila illa síðustu 20 mínúturnar."

„Það er stundum þannig að þegar þú nýtir ekki færin þá getur komið vesen. Auðvitað viltu vinna svona leik."


Er leikmannahópurinn tilbúinn fyrir fyrsta leik í deild?

„Ég veit það ekki, það kemur í ljós í næsta leik."

Pétur var að lokum spurður hvaða einn eða tveir hlutir við leik Vals hann myndi vilja breyta fyrir fyrsta leik í deild.

„Ég myndi ekki breyta neinu, bara gera þetta betur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.