Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. júní 2021 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Bauluðu á Englendinga sem krupu á hné
Mynd: EPA
Leikmenn Englands og Rúmeníu krupu á hné rétt áður en þjóðirnar mættust í vináttuleik í kvöld en þessi gjörnaður féll ekki í kramið hjá öllum stuðningsmönnum enska landsliðsins.

Leikmenn hafa undanfarið ár verið að sýna samstöðu í baráttunni gegn kynþáttafordómum með því að krjúpa á hné fyrir leiki en síðustu mánuði hefur verið mikið rætt og ritað um áhrif þess.

Það var ákveðið að gera þetta fyrir leik Englendinga og Rúmena í kvöld en Marcus Rashford var fyrirliði liðsins, sá maður sem hefur barist fyrir því að fá fæði fyrir börn í skólum á Bretlandseyjum og hefur haft hátt í baráttunni gegn kynþáttafordómum.

Það mátti heyra hluta af stuðningsmönnum enska liðsins baula á leikmenn þegar þeir ákváðu að krjúpa á hné. Þetta gerðist einnig þegar liðið mætti Austurríki á dögunum.

Hægt er að heyra þetta í útvarpi BBC í færslunni hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner