Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   lau 06. júní 2026 21:20
Brynjar Ingi Erluson
Deschamps um framtíð Olise: Það er ekkert rétt eða rangt val
Fer Michael Olise til Real Madrid?
Fer Michael Olise til Real Madrid?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, lagði orð í belg í umræðunni um framtíð Michael Olise.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur heitið því að leggja fram 150 milljóna evra tilboð í stórstjörnu takist honum að vinna forsetakosningarnar á morgun.

Tilboðið verður lagt á borðið á þriðjudag en samkvæmt erlendum miðlum er Olise leikmaðurinn sem Perez vill fá.

Bayern hefur þegar sagt að það myndi ekki selja Olise þó 200 milljóna evra tilboð kæmi á borðið, en þetta veltur líka á leikmanninum og hans hugsunum.

Deschamps var spurður út í Olise og framtíð hans, en hann sagði þetta allt undir leikmanninum komið.

„Ég hef engar áhyggjur af því að Olise geti endurtekið það sem hann gerir með Bayern, franska landsliðinu eða einhverjum öðrum félögum, en það gagnast ekki Bayern ef ég segi það.“

„Olise veit sjálfur mjög vel hvort hann vilji vera áfram hjá Bayern eða hvort hann þurfi að skipta um umhverfi. Það er ekkert rétt eða rangt val,
sagði Deschamps.

Olise er einn allra eftirsóttasti sóknarsinnaði leikmaður heims eftir stórkostlegt tímabil með Bæjurum. Hann skoraði 22 mörk og gaf 31 stoðsendingu í öllum keppnum.

Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins í Þýskalandi og valinn í lið deildarinnar annað árið í röð.
Slapp
banner