Íslenska kvennalandsliðið er lent í Manchester á Englandi en vélin lenti fyrir um það bil tíu mínútum síðan.
Landsliðið er á lið á sitt fjórða Evrópumót en það fer af stað í kvöld er England tekur á móti Austurríki.
Stelpurnar lentu í Manchester fyrir skömmu og halda nú í bækistöðvar sínar í Crewe.
Ísland leikur í D-riðli mótsins og er fyrsti leikurinn gegn Belgíu á sunnudag en sá leikur er spilaður á æfingavelli Manchester City.
Frakkland og Ítalíu eru einnig með Íslandi í riðli.
We have arrived in England. @WEURO2022 #dóttir pic.twitter.com/Xshtgjde5i
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 6, 2022
Athugasemdir