Tottenham nálgast samkomulag við Fernandes

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mateus Fernandes, miðjumaður West Ham, er nálægt því að ná samkomulagi við Tottenham. Fréttamaðurinn Matteo Moretto greinir frá þessu.
Moretto segir hins vegar að félögin séu ekki byrjuð í viðræðum um kaupverð.
Samkvæmt heimildum The Athletic ætlar West Ham að reyna að fá 80 milljónir punda fyrir Fernandes, sem er einnig á óskalista Manchester United, Real Madrid, Arsenal og Paris Saint-Germain.
Tottenham er stórhuga á markaðnum eftir mjög slæmt tímabil þar sem liðið var í fallbaráttu á síðasta tímabili. Félagið hefur nælt í Jan Paul van Hecke frá Brighton og þá er félagið í baráttunni um Sandro Tonali, miðjumann Newcastle.