Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 06. júlí 2022 11:30
Brynjar Ingi Erluson
Sara Björk á risaskjá á einu vinsælasta kennileiti Lundúna
Icelandair
Sara Björk á skjánum á Picadilly Circus
Sara Björk á skjánum á Picadilly Circus
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Picadilly Circus-torgið í Lundúnum er eitt vinsælasta kennileiti borgarinnar og mikið heimsótt af ferðamönnum á hverju ári en Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fótbolta.net, sá kunnuglegt andlit er hann leit upp á risaskjá sem stendur á torginu.

Evrópumót kvennalandsliða hefst í kvöld með leik Englands og Austurríki.

Mótið hefur fengið mikla umfjöllun til þessa og hafa styrktaraðilar auglýst það vel um allt land.

Hafliði var á göngu í Lundúnum er hann leit upp og sá þar risaskjá á Picadilly Circus en þar mátti sjá auglýsingu frá kortaframleiðandanum VISA, sem er stoltur styrktaraðili Evrópumótsins.

Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir fékk að njóta sín þar í landsliðsbúningnum.

Hann þótti nú eitthvað kannast við þessa mynd af Söru en hann tók einmitt myndina í leik Íslands við Serbíu í mars fyrr á þessu ári.

Íslenska landsliðið hefur leik á EM á sunnudag gegn Belgíu.


Athugasemdir
banner
banner