Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. ágúst 2022 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Messi og Neymar léku á als oddi í fyrsta deildarleiknum
Neymar og Messi voru óstöðvandi í kvöld
Neymar og Messi voru óstöðvandi í kvöld
Mynd: EPA
Lionel Messi og Neymar voru stórkostlegir í 5-0 sigri Paris Saint-Germain á Clermont í fyrstu umferð frönsku deildarinnar í kvöld. Neymar lagði upp þrjú og skoraði eitt á meðan Messi skoraði tvö og lagði upp eitt.

Messi lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Neymar á 9. mínútu með snyrtilegri sendingu til hliðar áður en Brasilíumaðurinn lagði upp annað mark leiksins fyrir Achraf Hakimi á 26. mínútu.

Marquinhos gerði þriðja mark PSG með skalla eftir aukaspyrnu Neymars og þar við sat í hálfleik.

Messi gerði fjórða mark leiksins eftir sendingu frá Neymar en fimmta mark leiksins sem Messi gerði var sérstaklega huggulegt. Leandro Paredes átti þá langa sendingu inn í teiginn og tók Messi boltann á bringuna áður en hann skoraði með bakfallsspyrnu.

Nostalgía frá dögum þeirra í Barcelona og það er alveg klárt mál ef að þetta er tengingin sem við fáum frá þeim á komandi leiktíð þá gætu eigendur PSG loks fengið að upplifa þann langþráða draum að vinna Meistaradeildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner