06.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Martínez ánægður hjá Villa

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez er ánægður hjá Aston Villa og er spenntur fyrir komandi tímabili, en þetta staðfesti umboðsmaður hans við Sky Sports í gær.
Hinn 33 ára gamli Martínez hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarin sumur.
Á síðasta ári var hann lengi orðaður við Manchester United, sem ákvað á endanum að kaupa Senne Lammens. Juventus hefur síðan reynt að fá hann í sumar og Inter hefur einnig sýnt áhuga.
Juventus var aðeins tilbúið að greiða um fimm milljónir punda fyrir Martínez. Aston Villa féllst ekki á þá upphæð og dró ítalska félagið sig í kjölfarið úr baráttunni.
Umboðsmaður Martínez ræddi við Sky Sports og vildu þar leiðrétta ýmislegt sem hefur komið fram um framtíð hans. Þeir segja markvörðinn aldrei hafa farið fram á sölu og að hann sé ánægður hjá Villa.
Hann hlakkar til komandi tímabils en Aston Villa verður aftur á meðal þátttökuliða í Meistaradeildinni.
„Það er eðlilegt að stór félög hafi áhuga á einum besta markverði heims, en Martínez myndi aðeins yfirgefa félagið ef Villa samþykkir það og ef það hentar öllum aðilum,“ sagði Gustavo Goni hjá umboðsmannaskrifstofunni Universal TwentyTwo.
Goni sagði Martínez jafnframt þakklátan fyrir stuðninginn sem hann hefur fengið frá Nassef Sawiris, eiganda Aston Villa.