05.08.26 - 22:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH samþykkir tilboð Víkings

Fagnar marki sínu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar marki sínu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net samþykkt kauptilboð frá Víkingi í Kjartan Kára Halldórsson.
Fótbolti.net fjallaði um það á mánudag að Víkingur væri með augastað á Kjartani Kára og virðist hann nú á leið í Víkina.

TENGT EFNI
Jói Kalli: Davíð og Kári eru væntanlega að ræða þessi mál
Kjartan Kári er 23 ára kantmaður sem uppalinn er hjá Gróttu en er á sínu fjórða tímabili með FH.
Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp fimm í 17 leikjum í Bestu deildinni í sumar. Hann skoraði jöfnunarmark FH gegn KR í kvöld og er sennilegt að það hafi verið síðasti leikurinn hans í FH treyjunni.
Framundan hjá Víkingi er Evrópueinvígi gegn Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leikur liðanna fer fram í Sviss á morgun. Á milli Evrópuleikjanna taka Íslandsmeistararnir á móti ÍBV.